Yst til hægri og yst til vinstri
Þar sem fjölmargt í endurreisn atvinnulífsins veltur á erlendu fjármagni og viðskiptatrausti til Íslendinga, telja sumir stjórnmálamenn að mikilvægt sé að leysa Icesave í anda þess tilboðs sem lá á borðinu fyrir þjóðaratkvæði. Fámennur hópur stjórnmálamanna er hins vegar á annari skoðun, og virðist ónæmur við nýlegum fréttum úr atvinnulífinu.
Óvíst er um verkefni Orkuveitu Reykjavíkur enda lánshæfi þess í ruslflokki þar sem tafir á Icesave og óviss aðgangur að erlendu lánsfé veldur áhyggjum um getu fyrirtækisins til að standa í skilum (Mbl. 7.apríl) Seðlabankinn segir að með óleyst Icesave verði meira atvinnuleysi, hærri vextir, lægra gengi og meiri niðurskurður (Visir 17.mars). Forstjóri Landsvirkjunar segir Búðarhálsvirkjun þurfa erlent fjármagn og við óleyst Icesave fái fyrirtækið ekki fjármuni á viðunandi kjörum til framkvæmda (Mbl. 11.mars). ASÍ og SA segja að lausn Icesave sé mikilvæg til að fyrirtæki fái fjármuni til atvinnusköpunar og að óbreyttu verði samdráttur mun meiri en ella (Vísir 10.mars, RUV 25.feb). Fjölmargir háskólaprófessorar hafa lýst áhyggjum sínum (Fbl. 4.mars og Mbl.2.feb) og greiningafyrirtækið Moody´s segir tafir á lausn Icesave ógna efnahagsbata á Íslandi og valda stíflu í flæði fjármuna til landsins bæði frá opinberum aðilum og einkaaðilum (Mbl.7.apríl).
Tafir á Icesave hafi þannig valdið fjárhagslegum skakkaföllum, seinkað viðspyrnu atvinnulífsins, minnkað trú fjárfesta og valdið tjóni á brothættu sálarlífi þjóðarinnar. Þar bera stjórnmálamenn yst til vinstri og yst til hægri ábyrgð enda í bandalagi undir merkjum blöndu af þjóðernishyggju og andstöðu við heimskapítalismann. Þessi öfl leiða lýðskrumið gegn Icesave og neita að horfast í augu við staðreyndir.
Að ræða Icesave er ekki fallið til vinsælda enda þjóðin orðin langþreytt á málinu og enginn kostur góður. En ég sé mig knúinn til þess enda málið mikilvægt fyrir íslenskt atvinnulíf. Hrunið varð ekki á vakt núverandi þingmanna en það er hörmulegt að horfa uppá skilningsskort þeirra gagnvart stöðu atvinnulífsins. Kjörnir fulltrúar verða að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna og ganga til samninga. Icesave er farið að valda meiri skaða en nauðsynlegt er.
1 Athugasemd
1.
Það er að koma á daginn að AGS lánin á að nota í virkjanir. Ég er á móti frekari virkjunum fyrir lánsfé.