Jarðhiti og fiskur
Niðurstaða nefndar um leigu á vatns- og jarðhitaréttindum sem kynnt var í gær, er sú að veita eigi réttinn til nýtingar auðlindar til 40-50 ára og að undantekningarlaust eigi að greiða gjald fyrir notkun.
Gjaldtakan yrði þríþætt;
1. Grunngjald sem svarar til að minnsta kosti kostnaðar vegna ytri áhrifa af nýtingu auðlindarinnar,
2. Greiðsla sem kemur til af uppboði ef fleiri en einn sækjast eftir auðlindinni
3. Auðlindarenta; það er ríkið fengi hluta af umframarði verkefnisins.
Samandregnar eru niðurstöður nefndarinnar m.a. þessar:
- Að þeim réttindum sem um ræðir verður ekki ráðstafað nema með tímabundnum hætti.
- Að ríkið eigi undantekningarlaust að taka gjald fyrir rétt til nýtingar þessara auðlinda.
- Að hafi notandi staðið við skilyrði og nýtt auðlind með ábyrgum hætti, eigi eftir föngum að framlengja tímabundna ráðstöfun til viðkomandi aðila.
- Að það sé grundvallaratriði þegar ríkið býður tímabundinn afnotarétt að það sé gert með gagnsæjum hætti og með jafnræðissjónarmið að leiðarljósi.
Til umfjöllunar hjá nefndinni voru vatns- og jarðhitaréttindi.
Af hverju ættu aðrar reglur að gilda jarðhita en fiskinn í sjónum?
0 Athugasemdir