29.03.10

Þorum við – getum við?

Samkvæmt efnahagsáætlun ríkisstjórnar þarf að ráðast í um 50 milljarða niðurskurð á þessu ári. Það eru ekki til peningar fyrir umframeyðslu. Það verður erfitt verkefni, enda þarf að skera niður næstum alls staðar t.d.  í þjónustu við börn, aldraða, sjúka, fatlaða og svo mætti lengi telja.

 

En - 

Geta þingmenn skorið niður í þjónustu við þá sjálfa? 

Geta þingmenn horfið frá sérhagsmunagæslu og horft á heildarmyndina?

 

Um helgina minni Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á þá staðreynd að í sáttmála ríkisstjórnar væri kveðið á um að fækka ætti verulega ráðuneytum – úr 12 niður í 9.  Um leið ætti að fækka stofnunum um 30-40%.

 

Það er mikilvægt að stjórnmálamenn gangi á undan með góðu fordæmi og hlífi sér ekki er kemur að niðurskurði og betri nýtingu fjármuna. Það er ljóst að hægt er að spara umtalsvert með því að sameina ráðuneyti og fækka undirstofnunum þeirra. 

 

Að líkja slíkum áformum við meðvitaða árás forsætisráðherra á ákveðnar atvinnugreinar er með hreinum eindæmum og í raun ekki svaravert.

0 Athugasemdir

LEGGÐU ORÐ Í BELG
Leitarvél

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi