28.03.10

3300 manns atvinnulausir vegna Icesave

Kostnaður við að ljúka ekki Icesave kemur betur og betur í ljós. Fyrir rúmri viku sagði  Seðlabankastjóri að mesta hindrunin í vegi fyrir frekari vaxtalækkun væri óleyst Icesave. Áhættusamt sé að afnema höft eða lækka vexti í stórum skrefum að óbreyttu.  

Seðlabankastjóri segir tvær leiðir færar. Annars vegar að semja um lyktir Icesave og halda áfram efnahagsáætlun stjórnvalda. Hin leiðin er sú að ljúka ekki Icesave og þá myndi núverandi gjaldeyrisforði verða nýttur til að standa skil á gjalddögum erlendra lána ríkisins. Sú leið – plan b -  myndi hafa í för með sér lægra gengi, lægri raunlaun, hærri vexti og enn meira aðhald í ríkisfjármálum. Aðalhagfræðingur SÍ sagði við sama tilefni að seinkun á Icesave þýddi að stórframkvæmdum myndi seinka, landsframleiðsla myndi lækka um 5 prósent og atvinnuleysi yrði tveimur prósentum meira.

Tveggja prósenta aukið atvinnuleysi þýðir að amk 3300 einstaklingar bætast í hóp atvinnulausra.

Það er skrýtið að berjast fyrir hagsmunum heimilanna og setja sig svo á móti lúkningu Icesave. Það er skrýtið að berjast fyrir uppbyggingu í atvinnulífi og setja sig svo á móti lúkningu Icesave.  Þeir bera ábyrgð sem voru á móti því að ljúka Icesave á lokasprettinum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar var dauðafæri til að ná betri samningi. Þeir hinir sömu töldu að samningsstaðan myndi batna við þjóðaratkvæðagreiðsluna en í staðinn sitjum við með óleyst mál langt fram á sumar eða haust.

Ég sagði já við Icesave samningi í lok desember því ég taldi að kostnaðurinn af því að hafa þetta mál óleyst myndi verða miklu meiri fyrir okkur öll en að ganga frá samningi. Því miður er þessi kostnaður að koma smátt og smátt í ljós. Við þurfum að leysa Icesave sem allra fyrst því lægri laun, hærri vextir, meiri niðurskurður, lægra gengi og 3300 einstaklingar atvinnulausir er bara ein birtingarmynd kostnaðar af óleystu Icesave.

 

 

3 Athugasemdir

1.

Sendandi: Doddi D
Gengið hefur hækkað síðan um áramót.

2.

Sendandi: Jón G.
Annað hvort er þetta ómerkilegur málflutningur eða 60% kjósenda eru fífl.

Hvernig greiddir þú atkvæði 6. mars?

3.

Sendandi: Mipaspisktype-online
eg var ad leita ad, takk
LEGGÐU ORÐ Í BELG
Leitarvél

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi