24.03.10

190 útgerðarmenn

Samtals nema styrkir til Sjálfstæðisflokksins þar sem nöfn styrkþega eru ekki gefin upp um 136 milljónum  króna á árunum 2002-2006. En það er ekki allt. Ennþá á flokkurinn eftir að birta nöfn þeirra sem styrktu aðildarfélögin útum land. Ennþá er til dæmis óljóst hverjir styrktu flokkinn á Ísafirði, Vestmanneyjum, Akureyri, Hafnarfirði og Reykjavík, svo einhverjir útgerðarbæir séu nefndir.

 

Tregða flokksins til að nefna hverjir styrktu hann, má kannski skoða í samræmi við harða andstöðu flokksins gegn svokölluðu skötuselsfrumvarpi. 

 

Sjálfstæðisflokkurinn gengur að minnsta kosti hispurslaust fram í hagsmunabaráttu fyrir útgerðarmenn þessa dagana.

 

Áttum okkur á því að þetta „skötuselsmál“ snýst um að útgerðarmenn (og sjálfstæðismenn) vilja ekki að þeir sem nýti auðlindir þjóðar greiði fyrir það gjald til þjóðarinnar.

 

Framkvæmdarstjóri SA viðurkenndi það í sjónvarpi í gær að þeirra samtök hefðu ekki verið svona á móti frumvarpinu ef viðbótin í skötusel myndi hafa runnið til þeirra sem í dag fá úthlutaðan kvóta. „Að sjálfsögðu ekki“ svaraði framkvæmdarstjórinn.  Þeir myndu semsagt ekki setja stöðugleika á vinnumarkaði í uppnám ef útgerðarmenn fengu áfram kvóta  án þess að greiða gjald fyrir til þjóðarinnar. „Að sjálfsögðu ekki“.

 

Það er svo skrýtið, en það vill oft gleymast að SA eru ekki bara hagsmunasamtök  190 útgerðarmanna.

 

Það eru yfir 2100 annarskonar atvinnurekendur í Samtökum atvinnulífsins.  Þarna eru atvinnurekendur í ferðaþjónustu, raforkugeiranum, meðlimir Samtaka Verslunar og Þjónustu, og yfir 1100 atvinnurekendur úr Samtökum Iðnaðarins. Er þetta fólk sammála þeirri nálgun SA um að setja sátt á vinnumarkaði í uppnám útaf skötusel sem kannski verður aldrei veiddur? 

 

Í hnotskurn:  190 útgerðarmenn vilja ekki greiða þjóðinni fyrir afnot af auðlindum hennar og þess vegna ætla hinir 2100 fyrirtækjaeigendurnir að setja sátt á vinnumarkaði í uppnám.

 

0 Athugasemdir

LEGGÐU ORÐ Í BELG
Leitarvél

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi