13.03.10

Uppstokkun í ríkisstjórn

 

Fjölmiðlar ræða nú  uppstokkun í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna og eitthvað er rætt um breytingu í ráðherraliði.

 

En gætum að.  Víða leynast órólegar deildir í þingflokkum.

 

Brýnustu verkefni ríkisstjórnar á Íslandi í dag eru skýr og skiptir þá engu hverjir skipa þá ríkisstjórn.

 

1.       Ljúka þarf Icesave málinu sem allra fyrst. Það er hægt að gera í anda þeirrar stefnu sem ný samninganefnd undir stjórn Lee Buchheit er að marka en nú er mál að linni. Icesave samningum þarf að loka.

2.       Halda þarf áfram endurreisn efnahagslífsins í samstarfi við AGS.  Samstarfið er lykilatriðið til að hingað leiti erlent fjármagn, vextir lækki, höft verði afnumin og króna styrkist.

3.        Gera þarf enn betur til að aðstoða heimili í skuldavanda.

4.       Koma þarf atvinnulífinu i gang með öllum tiltækum ráðum og minnka þannig atvinnuleysi.

5.       Halda skal áfram á þeirri leið að laga útgjöld ríkisins að tekjum þess. Næstu stóru skref í þeim efnum verða útgjaldamegin en ekki í gegnum hækkun skatta á fyrirtæki eða einstaklinga.

 

Fleira mætti nefna en ofangreint atriði þurfa að sæta forgangi.

 

Um leið verða til staðar réttar forsendur til að styðja ríkisstjórn.

1 Athugasemd

1.

Sendandi: Vésteinn Valgarðsson
Ég treysti því að þú vitir ekki hvað þú ert að tala um þegar þú hælir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
LEGGÐU ORÐ Í BELG
Leitarvél

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi