Lífeyrisréttindi
Í síðasta þætti Silfri Egils sunnudaginn 8. janúar fór sá misskilningur á flot að lífeyrisréttindi þingmanna á Alþingi í dag væru margfalt betri en annara launamanna.
Svo er ekki.
Lögum um lífeyrisréttindi þingmanna var breytt snemma árs 2009 (lög 12/2009) og síðan hafa þingmenn áunnið sér inn lífeyrisréttindi eftir sömu reglum og með sama hætti og aðrir ríkisstarfsmenn sem greiða í A-deild Lífeyrissjóðs Ríkisins.
Annað er óeðlilegt, enda eiga ekki að gilda aðrar reglur um þingmenn og aðra ríkisstarfsmenn.
Það leiðir um leið hugann að öðru verkefni;
Mikilvægt er að jafna þarf lífeyrisréttindi á vinnumarkaði almennt. Vinna við athugun á slíku er hafin á vegum stjórnvalda og væntir maður mikils af þeirri niðurstöðu. Hér er ég ekki að tala um að færa niður réttindi - heldur jafna þau til framtíðar litið.
3 Athugasemdir
1.
2.
3.