30.12.11

Grænt er ekki vinstri

Umræða um umhverfismál á Íslandi hefur því miður ekki náð að þroskast með nægilega góðum hætti. Að miklu leyti hefur umræðan snúist um virkjanir á hálendi Íslands og þar hefur fólki verið skipt í tvo hópa; virkjunarsinna eða verndarsinna og oft lítill skilningur á málflutningi ólíkra aðila. Þannig hafa t.d. röksemdir verndunarsinna verið sagðar bera vott um fagrar tilfinningar en ekki nógu mikilvægar til að eiga heima í umræðunni um hagvöxt og arðsemi.

 

Um leið og umræðan er dýpkuð er mikilvægt að fjarlæga umhverfismálin frá hefðbundinni hægri -vinstri skilgreiningu stjórnmálanna.  Vinstri menn á Íslandi hafa verið í fararbroddi umhverfismála á Íslandi  og unnið mikilvægt verk, en nú verða aðrir flokkar að bregðast við.  Umhverfismál eiga ekki og mega ekki vera einkamál vinstri manna.  Hversu nátengdir hagsmunir náttúruverndar og nýja atvinnulífsins á Íslandi sýna það vel að hægri menn ættu í raun að berjast hatrammlega fyrir verndun náttúrunnar. Samkeppnislausnir við útblástur gróðurhúsalofttegunda og hvernig grænn vöxtur  er talinn leysa atvinnumál framtíðarinnar eru fleiri dæmi.  Að mörgu leyti fara umhverfissjónarmið og áherslur vinstri manna um afskipti ríkisins einmitt mjög illa saman. Hefðbundin nálgun hægri manna um markaðslausnir á að mörgu leyti betri möguleika á að leysa viðfangsefni umhverfisverndar.

 

Verðmætasinnar

Hér verða jafnaðarmenn að taka forystu.  Jafnaðarmenn eiga að losa vinstri og hægri menn úr hefðbundnum skotgröfum verndunar og virkjunar og nálgast umræðuna útfrá sjónarmiði verðmætasköpunar.  Jafnaðarmenn eru verðmætasinnar.  Jafnaðarmenn skilja mikilvægi umhverfisverndar fyrir nútíma atvinnulíf og átta sig um leið á gildi markaðslausna. Það eru jafnaðarmenn sem skilja sambandið á milli ímyndar landsins og virðisaukningar sem af henni hlýst fyrir íslensk fyrirtæki á erlendum mörkuðum. 

 

Þeir sem hafa talað um mikilvægi stefnu eða aðgerða í umhverfismálum hafa hingað til á Íslandi verið málaðir andstæðingar uppbyggingar í atvinnulífi.  Þeir hafa verið kaffærðir í tölum um aukin hagvöxt, fjölgun starfa og aukin útflutningsverðmæti.  En stuðningsmenn umhverfisverndar eiga að standa keikir og nota tungumál sem atvinnulífið skilur. Aukin áhersla í umhverfisvernd og  ímynd hreinleika á Íslandi mun auka útflutningsverðmæti, fjölga störfum og auka hagvöxt.  

 

Virkjun og rafbílar

En um leið mega „verndunarsinnar“ ekki gleyma því að umhverfisvernd snýst ekki eingöngu um verndun vatnasviða.  Með sjálfbærum virkjunum í anda verndaráætlunar er hægt að skapa mikil verðmæti . Sala á rafmagni eykur tekjur hins opinbera og getur skapað grundvöll fyrir sókn í t.d. rafbílavæðingu eða almenningssamgöngum.  Þannig getur skynsamleg nýting orkuauðlinda skapað grundvöll fyrir mikla sókn í umhverfismálum.

 

Náið samband ímyndar hreinleika og sóknar íslenskra vara erlendis annars vegar og hvernig arðsemi virkjana getur fjármagnað sókn í umhverfismálum hins vegar, sýnir vel að hagsmunir ólíkra hópa geta farið vel saman. Um leið sýna þau að hefðbundin hægri- vinstri skipting  er kemur að umhverfismálum nær ekki að kalla fram þroskaða umræðu um stöðu umhverfismála.  Hér þurfa jafnaðarmenn að stíga fram og gerast málsvarar umhverfisverndar í þágu atvinnulífs rétt eins og þeir tala máli atvinnulífs í þágu umhverfismála.

3 Athugasemdir

1.

Sendandi: Snow
So excited I found this article as it made things much qiuekcr!

2.

Sendandi: okrdzs
tg6mZi , [url=http://ocyyllqzqfng.com/]ocyyllqzqfng[/url], [link=http://royipgecjrst.com/]royipgecjrst[/link], http://zetyesiyqgjr.com/

3.

Sendandi: yhecpjzxq
BA3ui3 , [url=http://qlcuczgcqucz.com/]qlcuczgcqucz[/url], [link=http://pbgzjypklakh.com/]pbgzjypklakh[/link], http://wkkakznplfqa.com/
LEGGÐU ORÐ Í BELG
Leitarvél

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi