Forskot
Aukin eftirspurn eftir umhverfisvænum eða grænum vörum sýna meiri vitund vesturlandabúa um stöðu umhverfismála. Breyttar áherslur neytenda hafa áhrif á stöðu fyrirtækja og mikilvægt er að bregðast við í tíma svo tryggja megi samkeppnishæfni. Ísland og íslenskar afurðir hafa ímynd hreinleika og við aukna vitund um stöðu umhverfisins eykst sífellt virði þeirrar ímyndar. Þannig eru Íslendingar í óskastöðu í samkeppnisumhverfi framtíðarinnar.
Sterk fyrirtæki
Ísland er vel í stakk búið til að takast á við mörg þau erfiðu viðfangsefni sem þjóðir heims glíma við á leið sinni til verndunar umhverfisins. Fyrir Ísland eru þessar áskoranir hins vegar gríðarleg tækifæri til að auka lífsgæði og velmegun til lengri tíma litið. Hjá öðrum þjóðum eru t.d. auknar kröfur um náttúruvernd, minni mengun og bætta umgengni; næsta óleysanlegar áskoranir og gríðarlega kostnaðarsamar. Vistvæn orka er yfirleitt stærsti þröskuldurinn á leið til sjálfbærni en á Íslandi er nær eingöngu notuð endurnýtanleg orka. Þannig er miklu auðveldara fyrir íslenskt fyrirtæki og íslenska framleiðslu, að stæra sig af sjálfbærni og bjóða „grænar“ vörur á markaði.
Þannig gefast tækifæri til sóknarleiks á mörgum sviðum. Setji Ísland sér metnaðarfull markmið í umhverfisvernd og nái þeim markmiðum verður hægt að bæta lífsgæði landsmanna umtalsvert. Um leið styrkjast möguleikar til umhverfisvænnar framleiðslu á vörum og þjónustu. Fleiri fyrirtækjum verði kleift að bjóða uppá sjálfbærar vörur eða þjónustu og þá styrkist ímynd Íslands sem land hreinleika og náttúru. Þannig fer það hönd í hönd aukin áhersla á umhverfisvernd, sterkari staða ímyndar Íslands og sterkari staða íslenskra fyrirtækja.
Það má ljóst vera að takist þjóðum vel upp við breytingar í átt til sjálfbærni og verndunar umhverfisins getur það fært þeim og fyrirtækjum þeirra mikið samkeppnisforskot á erlendum mörkuðum og skapað leiðir til virðisaukningar.
Andstaða við framþróun
Það er ærið verkefni að setja sér strangari viðmið í umhverfisvernd og þeim áherslum verður mætt með mótspyrnu. Allir vilja hagvöxt, en enginn vill breytingar. Niðurstöður loftlagsráðstefnunnar í Suður Afríku sýna það vel. Það eru til staðar öfl, hér á landi sem og annars staðar sem hafa það gott í núverandi kerfi og þau munu berjast gegn annarri forgangsröðun. En fyrr en síðar þurfum við að takast á við umhverfisvandamál og því fyrr sem við byrjum, því ódýrar mun það reynast. Aukinheldur mun aukin áhersla á umhverfismál færa fyrirtækjunum okkar betri möguleika til sóknar á erlendum mörkuðum.
3 Athugasemdir
1.
2.
3.