04.12.11

Merkileg frétt í ferðaþjónustu

Hún var látlaus en merkileg fréttin sem var í á blaðsíðu 62 í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag.

 

Þar greindi Kamilla Ingibergsdóttir einn forsvarsmanna Iceland Airwaves frá því að hátíðin árið 2012 yrði haldin tveimur vikum síðar en tíðkast hefur hingað til.  Næsta ár mun hátíðin standa frá 31. október til 4. nóvember. Kamilla segir svo frá:

 

„Upphaflega var markmið hátíðarinnar að fá ferðamenn til Reykjavíkur og árið 1999 var lítið um að vera í október. Nú er Reykjavík orðin svo vinsæl áfangastaður og nóg að gera hjá ferðaþjónustunni á þessum tíma, þannig að við ákváðum að færa hátíðina til að dreifa áaginu betur og lækka í leiðinni kostnað fyrir okkur.“

 

Það hefur lengi verið eitt helsta verkefni íslenskrar ferðaþjónustu að fá ferðamenn til að koma til landsins yfir vetrarmánuðina.  Þannig væri hægt að nýta fjárfestingar betur og styrkja til muna arðsemi greinarinnar. 

 

Horft hefur verið til þess að styrkja „axlirnar“, þ.e. þann tíma sem liggur sitt hvoru megin við háönn sumarsins. Stjórnvöld og hagsmunaaðilar hafa til dæmis ráðist í sérstakt markaðsátak í þessum efnum sem ber heitið „Ísland allt árið“. 

 

Fréttin um Iceland Airwaves er því mjög ánægjuleg og sýnir að við erum á réttri leið

3 Athugasemdir

1.

Sendandi: Aggy
If your articles are awylas this helpful, "I'll be back."

2.

Sendandi: zwispfsvk
GmZWmM , [url=http://ajnlakbcfwov.com/]ajnlakbcfwov[/url], [link=http://ftkvyniphvqy.com/]ftkvyniphvqy[/link], http://aczdgmixflbl.com/

3.

Sendandi: yhfuxube
jZLSBP , [url=http://fvjipeyzjyjg.com/]fvjipeyzjyjg[/url], [link=http://xlmfqxezkxiw.com/]xlmfqxezkxiw[/link], http://qpvjrqbosshl.com/
LEGGÐU ORÐ Í BELG
Leitarvél

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi