Reyka Vodki og Einstök
Viðskiptahugmyndir fyrirtækja byggja á því að raða saman aðföngum (t.d. starfsfólki, húsnæði, auðlindum, birgðum, jarðnæði) þannig að til verður vara eða þjónusta sem hægt er að selja fyrir hærra verð en kostnaðinn sem hlýst af öflun aðfanganna. Þannig verða til verðmæti.
Fyrirtæki skapa sér sterka stöðu á markaði ef því tekst að búa til vöru sem aðrir eiga erfitt með að herma eftir eða búa einnig til. Þá þarf fyrirtækið ekki að keppa á forsendum verðlagningar við samkeppnina. Oft tekst fyrirtækjum að skapa sér sérstöðu vegna ímyndar vörunnar eða fyrirtækisins. Draumastaða fyrirtækisins er að sérstaða vörunnar sé ástæða kaupa viðskiptavinar en ekki verðlagning vörunnar.
Sérstaða á markaði
Fyrir fyrirtæki frá Íslandi skiptir þetta atriði miklu máli enda erum við fámenn þjóð sem liggur langt frá stærstu mörkuðum heims. Við verðum seint eða aldrei samkeppnishæf í framleiðslu á vörum sem keppa í verðum og eru framleiddar í miklu magni. Við eigum möguleika á að ná árangri ef sérstaða vörunnar liggur í gæðum eða eiginleikum vörunnar.
Mikilvægustu fyrirtækin á Íslandi eru þau sem hafa náð árangri á erlendum mörkuðum. Þau færa verðmæti inní landið, og eiga mikla vaxtarmöguleika enda ekki bundin af litlum heimamarkaði. Í tilviki margra útflutningsfyrirtækja byggja þau sérstöðu sína að einhverju leyti á Íslandi. Þannig nýta þau ímynd Íslands (einstök náttúra og hreinleiki afurða) til að skapa sér sérstöðu og þannig verða gæði og ímynd að lykilþætti við kaup á vörunni en ekki verðlagning. Erlendar og innlendar rannsóknir styðja þetta en í huga viðskiptavina ræður upprunaland miklu um viðhorf til vörunnar og gæða hennar.
Glöggt er gests augað
Erlend fyrirtæki og einstaklingar eru sömuleiðis búin að átta sig á því virði sem felst í því að tengja sig við Ísland; hreinleika landsins og náttúru. Stórt alþjóðleg fyrirtæki ákvað fyrir nokkrum árum að framleiða vodka í Borgarnesi undir heitinu Reyka Vodka. Hörð samkeppni ríkir á alþjóðlegum markaði fyrir vodka drykki og aðgreining á markaði því mikilvæg. Í tilviki Reyka Vodka er Ísland, náttúra þess og menning, norðurljósin, tónlistin, orðsporið, fámennið, vatnið og hraunið - grundvallar þáttur í markaðssetningu. Þannig er Ísland nýtt til að marka vörunni sérstöðu, markaðslegan ávinning, gæðastimpil og um leið skapar ímynd Íslands verðmæti.
Nýlegra dæmi er um erlenda athafnamenn sem í samstarfi við bruggverksmiðju á Akureyri hafa kynnt íslenskan gæðabjór sem ætlaður er til sölu erlendis. Bjórinn ber heitið „Einstök“ en frumkvöðlarnir segja það stefnu fyrirtækisins að markaðssetja bjórinn sem hágæðabjór. Í viðtölum við fjölmiðla segja þeir hyggjast „nýta sér ímynd landsins við markaðssetningu og segja að ólíkt flestum öðrum bjórtegundum þurfi ekki að teygja sannleikann til að kenna bjórinn við hreinleika og fegurð“.
Hin nýja atvinnupólitík
Ísland er í huga margra land hreinna afurða og sérstæðrar náttúru. Íslensk útflutningsfyrirtæki og erlend fyrirtæki nýta sér þessa ímynd við markaðssetningu og virðisaukningu á erlendum mörkuðum. Í því felast mikil verðmæti fyrir Ísland. Sterk ímynd náttúru, hreinleiki og verndun náttúru eru að skapa mikil efnahagsleg verðmæti í öllum greinum útflutnings og vaxtarmöguleikarnir eru miklir. Þessi nánu tengsl ímyndar landsins og virðisaukningar fyrirtækjanna sýna vel hvernig hagsmunir náttúruverndar og viðskiptalífs fara saman. Þannig virðist samkeppnisforskot efnilegustu útflutningsfyrirtækjanna að einhverju leyti byggja á ímynd landsins, það er öflugri náttúruvernd og verndun umhverfis. Hér kallar nýja atvinnulífið á aðra forgangsröðun en gamla atvinnulífið. Í atvinnulífi framtíðarinnar á Íslandi eru verndun umhverfisins og öflug uppbygging atvinnulífs ekki andstæðir pólar. Þannig kallar nýja atvinnulífið eftir nýjum áherslum í umhverfismálum á Íslandi.
116 Athugasemdir
1.
2.
3.
4.
This is my homepage - http://jskdh5jkd7djh4.com/l
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
32.
33.
34.
35.
36.
37.
38.
39.
40.
41.
42.
43.
44.
45.
46.
47.
48.
49.
50.
51.
52.
53.
54.
55.
56.
57.
58.
59.
60.
61.
62.
63.
64.
65.
66.
67.
68.
69.
70.
71.
72.
73.
74.
75.
76.
77.
78.
79.
80.
81.
82.
83.
84.
85.
86.
87.
88.
89.
90.
91.
92.
93.
94.
95.
96.
97.
98.
99.
100.
101.
102.
103.
104.
105.
106.
107.
108.
109.
110.
111.
112.
113.
114.
115.
116.