Að loknum landsfundi
Kjósendur og stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru um margt réttsýnt og sanngjarnt fólk. Þetta fólk er að fá sérstök skilaboð frá leiðtogum flokksins á nýliðnum landsfundi.
Í fyrsta lagi hljómar það einkennilega þegar formaðurinn í setningarræðu sinni segir að „ítrekað hefur verið veist að Davíð Oddssyni, farsælasta forsætisráðherra seinni tíma”
Í öðru lagi er sérstakt að landsfundurinn skuli hlægja sig máttlausan þegar umræddur fyrrverandi formaður kemur í pontu og reynir að segja barnalega brandara um pólitíska andstæðinga. Það sæmir engri samkundu sem vill taka sig alvarlega.
Hvað er auðmýktin gagnvart fortíðin flokksins og hvar er virðingin fyrir þeirri stöðu sem þjóðfélagið var í þegar flokkurinn skildi við?
Hér voru 70% fyrirtækja gjaldþrota, stór hluti heimila í neikvæðri eiginfjárstöðu og ríkissjóður í rúst, þegar flokkurinn fór úr ríkisstjórn.
Hér þurfti almenningur að setja um 300 milljarða af skattféi til að endurreisa Seðlabanka Íslands við hrun.
Flokkurinn virðist algerlega ónæmur fyrir ábyrgð sinni.
Söguskýring flokksins er að kreppan sé núverandi stjórnarflokkum að kenna. Hins vegar er nú staðreyndin sú að þessi ríkisstjórnin hefur varla komist til annara verka en að hreinsa upp eftir flokkinn og viðskilnað hans. Hér hefur þurft að skera niður og hækka skatta vegna þess að flokkurinn skildi við ríkissjóð í rúst. Það var 140 milljarða halli á sjóðnum þegar flokkurinn fór úr ríkisstjórn. Þess vegna hefur þurft að taka erfiðar ákvarðanir.
Og eitt atriði svona í lokin. Hvað þýðir þessi ályktun um Evrópusambandið?
„Landsfundur ályktar að gera skuli hlé á aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þær ekki hafnar að nýju nema það verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst í stjórn eftir 18 mánuði, þá verður viðræðum við ESB væntanlega lokið.
Þá vilja Sjálfstæðismenn semsagt að ráðist verði í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort samningur skuli fara í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þjóðin á að ákveða hvort þjóðin á að ákveða.
Stundum verða málamiðlanir að bastörðum.
Við blasir að harðlínuöfl undir forystu hins "farsæla" fyrrum forsætisráðherra urðu ofan á. Brutu frjálslynda miðjumenn og Evrópusinnana undir sig með furðuverki sem þeir kalla málamiðlun í Evrópumálum. Málamiðlun um að hætta við og kjósa um að kjósa. Þvílík nálgun á mikilvægasta úrlausnarefni samtíma okkar; framtíð gjaldmiðils- og peningamála þjóðarinnar sem situr uppi með verðlausan og verðtryggðan gjaldmiðil í höftum eftir 18 ára „sæluríki“ Sjálfstæðisflokksins.
Hvað nú hljóta margir frjálslyndir kjósendur nálægt miðju að spyrja sig eftir þennan landsfund. Fund sem helst verður minnst fyrir afturgöngu hins "farsæla" og svartstakkasveitar hans. Þessu þurfa frjálslyndir jafnaðarmenn í Samfylkingunni og annarsstaðar að svara skýrt á næstu misserum.
0 Athugasemdir