Hver er Magnús Orri?

Magnús Orri Schram í hnotskurn

 

Magnús Orri Schram er 39 ára gamall Kópavogsbúi. Hann er með BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu (MBA) í stjórnun og viðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur stundað doktorsnám og kennslu í frumkvöðlafræðum við sama skóla.

 

Magnús Orri hefur m.a. starfað sem íþróttafréttamaður hjá Sjónvarpinu, sem  framkvæmdarstjóri hjá KR og rekið eigið fyrirtæki. Magnús Orri hefur starfað sem stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavik. Síðustu árin fyrir þingmennsku starfaði hann sem sölu- og markaðsstjóri fyrir vörur Bláa Lónsins á erlendum mörkuðum.

 

 

 

Æviágrip

 

Magnús Orri bjó fyrstu æviárin í vesturbæ Reykjavíkur en fluttist sex ára gamall út á Álftanes, og varð um haustið meðal fyrstu nemenda í nýjum Álftanesskóla. Þá bjuggu einungis liðlega 300 manns á Álftanesi og fjölmargir íbúar stunduðu einhvers konar búskap.

 

Magnús Orri var virkur þátttakandi í félagslífi Álftaness á þessum árum, var meðal fyrstu flokksforingja í Skátafélaginu og í stjórn Ungmennafélagsins.

 

Eftir grunnskóla fór Magnús Orri í Menntaskólann við Hamrahlíð og lauk þaðan stúdentsprófi 1992.  Magnús lauk BA prófi í sagnfræði frá HÍ 1997 en hluta námsins tók hann í Cork á Írlandi þar sem hann lagði stund á nám í írskri nútímasögu. Samhliða námi var Magnús nokkur haust fararstjóri á vegum Samvinnuferða Landssýn á Írlandi. Magnús sat í stjórn stúdentaráðs HÍ fyrir hönd Röskvu 1992-1994.

 

Að loknu námi gerðist Magnús  frétta- og dagskrárgerðamaður á íþróttadeild Sjónvarpsins og gegndi því starfi allt þar til hann varð framkvæmdarstjóri hjá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur 1999. Þar stýrði hann rekstri meistaraflokks karla í knattspyrnu um tveggja ára skeið.  Félagið var mjög sigursælt á þessum tíma og fagnaði m.a. Íslandsmeistaratitli í fyrsta skipti í 31 ár.

 

Eftir störf á fyrirtækjasviði Símans stofnaði Magnús fyrirtækið Birta Vefauglýsingar síðla árs 2002. Birta var fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfði sig í sölu og birtingum á vefauglýsingum á Íslandi.

 

Árið 2003 lauk Magnús MBA námi (meistaranám í viðskiptum og stjórnun) við Háskólann í Reykjavík og í kjölfarið hóf hann doktorsnám í frumkvöðlafræðum við sama skóla með sérstakri áherslu á frumkvöðlastarfsemi innflytjenda (immigrant entrepreneurship) og alþjóðlega frumkvöðlastarfsemi (international entrepreneurship).

 

Hann ritaði greinarnar „Af hverju stofna Íslendingar fyrirtæki“ með Rögnvaldi J. Sæmundssyni og Guðrúnu Mjöll Sigurðardóttir í Rannsóknir í Félagsvísindum V – sem gefin var út 2004 af Háskóla Íslands og „Frumkvöðlastarfsemi innflytjenda“ í Rannsóknir í Félagsvísindum VI sem gefin var út 2005 af Háskóla Íslands.  Samhliða námi sinnti Magnús stundakennslu við viðskiptadeild Háskólans og við Listaháskóla Íslands. Magnús hefur síðan kennt á námskeiðum á vegum HR m.a. frumkvöðlanámskeiðum fyrir innflytjendur á Íslandi og erlenda frumkvöðla.

Frá árinu 2006 til vorsins 2009 stýrði Magnús Orri sölu- og markaðsmálum fyrir Bláa Lónið á erlendri grundu en á undanförnum árum hefur sala á snyrtivörum fyrirtækisins verði byggð upp í Evrópu og Bandaríkjunum.

 

 

Þrátt fyrir búsetu á Álftanesi og stopular samgöngur  á árum áður æfði Magnús Orri knattspyrnu með KR frá unga aldri. Rétt á meðan hann sótti Gagnfræðiskóla Garðabæjar þá lék hann með Stjörnunni og lék svo með KR alla leið uppí meistaraflokk félagsins árin 1994 og 1995. Þau ár fagnaði KR tveimur bikarmeistaratitlum undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar. Lagði Magnús skóna á hilluna eftir bekkjarsetu í Evrópuleik KR gegn Everton á Goodison Park haustið 1995.

 

 

Magnús Orri var einnig mikið í hestamennsku sem barn og stundar nú hestamennsku í Sörla í Hafnarfirði ásamt fjölskyldu sinni og tengdaforeldrum.

 

 

Magnús Orri er sonur Marínar Magnúsdóttur og Ólafs M. Schram. Magnús Orri er giftur Herdísi Hallmarsdóttur hæstaréttarlögmanni og eiga þau tvö börn  - Sigríði Maríu 17 ára og Hallmar Orra 12 ára.

 

Magnús Orri settist á þing vorið 2009 og hefur frá upphafi verið varaformaður viðskiptanefndar Alþingis. Þá situr hann í efnahags- og skattanefnd og iðnaðarnefnd.

 

Hægt er að ná í Magnús Orra í síma 841-1700

Leitarvél

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi