Helstu áhersluatriði

Hér má sjá áhersluatriði þau sem ég beitti mér fyrir í prófkjöri Samfylkingar vorið 2009.

  • Að Íslands hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið strax á næsta kjörtímabili og í kjölfarið fái þjóðin að taka afstöðu til inngöngu. Margvíslegur ávinningur fylgir í kjölfar umsóknar s.s. betra samband við nágrannaþjóðir, aukinn stöðugleiki í gjaldmiðilinn og bætt umhverfi fyrirtækja og heimila.
  • Að Ísland geri náttúru landsins og afurðir hennar að lykilþætti í uppbyggingu atvinnulífsins. Þannig verði umræða um umhverfisvernd tekin frá skotgröfum þrýstihópa og náttúra Íslands skilgreind sem mikilvægur þáttur í endurreisninni. Slíkt hefði mikil áhrif innan  ferðaþjónustunnar og annara fyrirtækja sem byggja tilvist sína á ímynd Íslands og afurðum lands og sjávar.
  • Að ný vinnubrögð verði tekin upp í íslenskum stjórnmálum þar sem þjóðarheill vegi þyngra en frami einstakra flokka eða manna. Hafin verði endurskoðun stjórnarskrárinnar og horft verði til vinnulags sem tíðkast í okkar öflugustu fyrirtækjum og háskólum og því beitt á þau viðfangsefni sem bíða íslenskra stjórnmála.
  • Að nýtt atvinnulíf byggt á myndun þekkingarklasa, mikilvægi nýsköpunar, sjálfbærni, og beitingu hagrænna hvata í umhverfismálum, fái brautargengi við uppbygginguna sem er framundan.
Leitarvél

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi