Nýtt atvinnulíf
Nú er mikilvægt að sporna við atgervismissi og veita ungu fólki aftur trú á framtíð lands og þjóðar. Því er mikilvægt að stjórnvöld ákveði að sækja fram með nýjungar í atvinnulíf þjóðarinnar. Sérstaklega á að horfa til nýsköpunar, miðlun þekkingar og Að innleiða hugmyndafræði nýsköpunar getur gegnt lykilhlutverki.
Virkja þarf fyrirtækjaklasa í þeim greinum atvinnulífsins þar sem Íslendingar eru í fararbroddi s.s. á sviði sjávarútvegs, endurnýtanlegrar orku eða innan ákveðinna geira ferðaþjónustu. Nýta þarf þá möguleika sem liggja í samvinnu þeirra aðila sem eru innan þessara sviða og á milli þeirra.
Ferðaþjónusta verði skilgreind sem ein af þremur meginstoðum íslensks atvinnulífs. Hvatt verði til nýsköpunar og framþróunar í þjónustu ferðamanna. Sérstaklega verði horft til hennar sem úrræða til að styrkja gjaldeyrisforða þjóðarinnar og leysa úr slæmri stöðu í atvinnumálum.
Horft verði til þess að auka sjálfbærni t.d. með því að opna á frekari möguleika á fullvinnslu afurða heima í héraði. Þannig verði horft til vistvænnar framleiðslu og tengsla hennar við ferðaþjónustu.